Eftirréttur sem slær allt út

Í Vestmannaeyjabæ rekur Einar Björn Árnason veitingastaðinn Einsa kalda. Einar …
Í Vestmannaeyjabæ rekur Einar Björn Árnason veitingastaðinn Einsa kalda. Einar man eftir sér sýslandi í eldhúsi sem lítill peyi og leiðin lá snemma í kokkanám á meginlandinu. Hann sneri svo til baka og þegar Landeyjahöfn varð að veruleika sá Einar að grundvöllur væri fyrir að opna flottan veitingastað í miðbænum og hafa hann opinn allan ársins hring. Ásdís Ásgeirsdóttir

Ef þig langar að slá vel um þig í næsta matarboði mælum við með þessari uppskrift en hér gefur að líta dásamlega blöndu af skyrfroðu, bláberjakrapi, hvítsúkkulaðiostakremi og hafra-crumble.

Fyrir þá sem eru ekki þegar búinir að ákveða að bjóða upp á þennan rétt við fyrsta tækifæri þá má þess geta að hann kemur úr smiðju Einsa kalda í Vestmannaeyjum og maturinn þar þykir afburðagóður. 

Skyrbúðingur og bláber

Fyrir sex

Skyrfroða

  • 200 ml mjólk
  • 200 g skyr hreint
  • 150 g flórsykur
  • lime-safi

Aðferð:

  1. Þeytið mjólk, skyr og flórsykur saman. Bætið lime-safa saman við.
  2. Hellið þessu svo í rjómasprautu og notið 3-4 gashylki til að ná réttri áferð. Þá er hægt að sprauta þessu í ílát. Geymið í kæli yfir nótt.

Bláberjakrap

  • 100 g sykur
  • 50 g glúkósi
  • ½ l bláberjasafi
  • 150 ml vatn

Aðferð:

  1. Hitið í potti að suðu.
  2. Bætið því næst við 4 g af þykkingarefni og hrærið saman með töfrasprota.
  3. Nauðsynlegt er að gera þetta daginn áður og frysta.

Hvítsúkkulaðiostakrem

  • 125 g rjómaostur
  • 125 g mascarponeostur
  • 80 g sykur
  • 175 g hvítt súkkulaði
  • 120 g þeyttur rjómi

Aðferð:

Bræðið saman yfir vatnsbaði ost, sykur og súkkulaði. Þeytið rjóma og blandið honum varlega saman við með sleikju.

Hafra-crumble

  • 100 g haframjöl
  • 250 g sykur
  • 200 g hveiti
  • 150 g smjör við stofuhita
  • kanilstöng

Aðferð:

Blandið öllu saman og dreifið á bökunarpappír. Bakið í 20 mínútur á 160°C.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert