Glasið kostar tæpa hálfa milljón króna

Glösin sex eru hvert öðru fegurra.
Glösin sex eru hvert öðru fegurra. mbl.is/La DoubleJ

Það er ekki sama úr hverju drukkið er og hér gefur að líta forláta tipetti-glös sem kosta hvorki meira né minna en 487 þúsund krónur stykkið.

Um er að ræða handblásin glös eftir ítalska framleiðandann Salviati sem byggir á ævafornri hefð. Glösin eru einungis framleidd í takmörkuðu upplagi og þykja mikið listaverk.

Hvort einhver þori svo að drekka úr þeim skal ósagt látið en hægt er að panta glösin HÉR.

mbl.is/La DoubleJ
mbl.is/La DoubleJ
mbl.is/La DoubleJ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert