Lasagna fyrir letihauga

Þessi réttur krefst ekki mikils. Eina sem þarf er að …
Þessi réttur krefst ekki mikils. Eina sem þarf er að henda öllu í pott, hræra í með sleif og rífa smá ost yfir í lokin. mbl.is/ohsweetbasil

Sumir dagar eru einfaldlega erfiðari en aðrir og stundum stendur fólk bara alls ekki til stórræða í eldhúsinu. Öðrum er það um megn að þurfa að raða hverju lagi ofan á annað í eldfast mót, hvað þá að kveikja á bakaraofninum til þess að gera lasagna. Þá er gott að eiga uppskrift af einföldu og góðu lasagna sem krefst hvorugs. Það eina sem þarf er að henda öllu í pott, hræra í með sleif og rífa smá ost yfir í lokin. Þetta köllum við lasagna fyrir letihauga á góðri íslensku og það þarf enginn að skammast sín fyrir að elda svoleiðis annað slagið.

Lasagna fyrir letihauga

  • 450 gr. pasta
  • 1 msk. ólífuolía
  • 500 gr. hakk
  • 1 stór krukka af pastasósu
  • 1 tsk. salt
  • 1 tsk. hvítlaukskrydd
  • 2 tsk. oregano
  • ½ tsk. saxað chili
  • 1 bolli rifinn mozzarella ostur
  • 1 bolli sýrður rjómi
  • 1 bolli rifinn parmesan ostur

Aðferð

  1. Sjóðið pasta í potti. Gott er að bæta smá salti í vatnið. Eldið þar til pastað er tilbúið „al dente“.

  2. Hendið hakkinu á pönnu og steikið þar til það er fallega brúnt og tilbúið. Hellið þá pastanu yfir kjötið og sáldrið ólífuolíu yfir.

  3. Hellið pastasósunni saman við, bætið við salti, hvítlaukskryddi, oregano og söxuðu chili. Hrærið vel. Bætið við rifnum mozzarella osti og sýrðum rjóma.

  4. Hrærið þetta saman yfir lágum hita þar til osturinn bráðnar og allt er vel blandað saman. Smakkið til og bætið við salti eða pipar ef þarf.

  5. Rífið parmesan og/eða mozzarella ost yfir og ef þið nennið þá má saxa smá ferskan basil og sáldra yfir. Berið fram í pottinum, heimilislegt og letilegt. Það má líka borða beint upp úr pottinum, við segjum engum frá.
Það þarf enginn að skammast sín fyrir smá eldhúsleti annað …
Það þarf enginn að skammast sín fyrir smá eldhúsleti annað slagið. mbl.is/ohsweetbasil
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert