Framúrstefnulegt avókadó-súkkulaði

Avókadósúkkulaðið búið til úr alvöru avókadó í bland við hvítt …
Avókadósúkkulaðið búið til úr alvöru avókadó í bland við hvítt súkkulaði og karamellaða bita af ristuðu brauði. mbl.is/Compartés

Þetta er líklega upplagt fyrir þá sem nenna ekki að hafa fyrir því að rista sér brauðsneið og merja lárperu ofan á það. Súkkulaðiframleiðandinn Compartés Chocolatier í Los Angeles hefur nú sett á markað súkkulaði sem bragðast eins og avókadó á ristuðu brauði. En framleiðandinn er þekktur fyrir framúrstefnulegt súkkulaði, til dæmis selja þeir súkkulaði með kaffi og kleinuhringjabragði, afmæliskökubragði og súkkulaði búið til úr rósavíni. Er avókadósúkkulaðið búið til úr alvöru avókadó, ræktað í Kaliforníu, í bland við hvítt súkkulaði og karamellaða bita af ristuðu brauði. Súkkulaðið er víst aðeins fáanlegt í takmörkuðu upplagi og því um að gera að panta sér sem fyrst, fyrir þá sem eru í þeim hugleiðingum. Hægt er að nálgast súkkulaðið á heimasíðu Compartés Chocolatier, en þar er margt skemmtilega óvenjulegt að finna.

Súkkulaðiframleiðandinn Compartés Chocolatier er þekktur fyrir framúrstefnulegt súkkulaði
Súkkulaðiframleiðandinn Compartés Chocolatier er þekktur fyrir framúrstefnulegt súkkulaði mbl.is/compartés
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert