Byrjunarörðugleikar með nýju umbúðirnar

Mjólkursamsalan hefur tekið úr sölu og innkallað rifinn ost í 200g endurlokanlegum umbúðum að því að fram kemur í tilkynningu á heimasíðu fyrirtækisins. Ástæða innkölluninnar er galli í umbúðum sem veldur því að osturinn á það til að mygla. 

Um er að ræða vörunýjung hjá Mjólkursamsölunni sem væntanlega á eftir að mælast vel fyrir hjá neytendum nú þegar búið er að laga galla í umbúðunum. 

Einungis er þó átt við endurlokanlega poka með best fyrir 31. ágúst, 20. sept, 21. sept, 25. sept og 26. sept. Allar aðrar dagsetningar eru í lagi.

Neytendum sem keypt hafa rifinn ost með ofangreindum dagsetningum er bent á að skila honum þangað sem hann var keyptur. Mjólkursamsalan biður neytendur velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert