Aðdáendur hinna stórkostlegu þátta Golden Girls geta tekið gleði sína og gott betur því að von er á því sem við göngum svo langt að kalla matreiðslubók aldarinnar.
Eins og flestir muna var mikið um mat í þáttunum, og þá ekki síst ostakökur, en samkvæmt útreikningum var ostakaka í 1,8. hverjum þætti.
Staðfest hefur verið að töluvert verði af ostakökuuppskriftum en jafnframt verði í henni réttir sem skipuðu stóran sess í lífi vinkvennanna fjögurra sem þættirnir fjölluðu um.
Von er á bókinni árið 2020 og við fylgjumst að sjálfsögðu spennt með hér á Matarvefnum og færum ykkur fregnir af um leið og þær berast.