Bragðgóðir Bounty-bitar

Ljúffengir Bounty-bitar fyrir þá sem elska kókos og súkkulaði.
Ljúffengir Bounty-bitar fyrir þá sem elska kókos og súkkulaði. mbl.is/Ditte Ingemann

Kókos og súkkulaði vekur oftar en ekki mikla lukku hjá flestum og það ekki að ástæðulausu, enda ná þessi tvö hráefni einkar vel saman. Hér er uppskrift að bragðgóðum Bounty-stöngum sem fengin er úr bókinni „Sukkerfri børnefest“ en í þeirri bók er öllum hvítum sykri skipt út með öðrum og hollari hráefnum. Og til að setja punktinn yfir i-ið má rífa appelsínubörk, kanil, piparmyntu, vanillu eða lakkrís yfir, allt eftir eigin smekk.

Bragðgóðir Bounty-bitar (12 stk.)

  • 25 g mjúk kókosolía
  • 100 g kókoskrem – þykka lagið á kókosmjólkinni úr dósinni. Passið að hrista ekki dósina og setjið hana jafnvel inn í ísskáp klukkutíma áður en hafist er handa, þá ætti „kremið“ að liggja sem efsta lag þegar dósin er opnuð.
  • 150 g kókosmjöl
  • 30-40 g kókossykur (má nota venjulegan sykur)

Skraut:

  • 100 g dökkt súkkulaði
  • Kókos, lakkrísduft eða ber

Aðferð:

  1. Kókoskreminu (þykka lagið af kókosmjólkinni úr dósinni), kókosolíu, kókosmjöli og sykri er blandað saman í skál. Auðveldast er að gera það með höndunum.
  2. Þegar allt hefur blandast vel saman, og er enn þá dálítið klístrað eru mótaðir 12 litlir bitar um 5 cm langir.
  3. Setjið í kæli í tvo tíma, eða þar til þeir eru þéttir í sér.
  4. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Vatnið í pottinum má ná upp að helmingnum af skálinni en passa að það fari ekki að sjóða. Passið líka að það komist ekki vatn í súkkulaðið.
  5. Veltið kókos-stöngunum upp úr súkkulaðinu og setjið á bökunarpappír.
  6. Dreifið kókos eða öðru sem hugurinn girnist yfir bitana til skrauts.
  7. Ef bitarnir eru geymdir í kæli geymast þeir í sirka viku – þ.e.a.s. ef þeir eru ekki borðaðir strax.
mbl.is/Ditte Ingemann
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert