Langar þig á Gucci-veitingastað?

Þú finnur Gucci veitingahúsið í Flórens á Ítalíu.
Þú finnur Gucci veitingahúsið í Flórens á Ítalíu. mbl.is/Gucci Osteria

Ertu tískuaðdáandi í hæstu gráðu eða hefur einfaldlega áhuga að upplifa veislu fyrir líkama og sál – þá er ferðinni heitið til Ítalíu. Í Flórens finnur þú veitingahúsið Gucci Osteria da Massimo Bottura, nánar í Gucci Garden þar sem ítalski kokkurinn Massimo Bottura opnaði dyrnar í byrjun þessa árs við frábærar undirtektir.

Matseðlarnir eru fallega bleikir og réttirnir eru í ítölskum anda, bornir fram á fallega skreyttum diskum eins og hver önnur flík frá Gucci. Veggirnir eru grænir á lit og glamúrinn er allsráðandi, allt eins og það á að vera þegar um hátískunafn er að ræða.

Nú geta aðdáendur notið dásamlegs matar, skoðað gallerí með Gucci-fatnaði, listaverkum og kíkt í geggjaða tískuvöruverslun, allt í sömu ferðinni.

mbl.is/Gucci Osteria
mbl.is/Gucci Osteria
mbl.is/Gucci Osteria
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert