Forréttir á fimm mínútum

„Það var strax ljóst í vöruþróunarferlinu að hér var á ferðinni nýjung sem bauð upp á svo miklu meira en gott bragð,“ segir Jóhannes Egilsson, útflutningsstjóri hjá Ora, um vörulínuna Iceland's Finest, sem boðar nýja tíma í hérlendri forréttamenningu. Um er að ræða vörur sem byggja á gömlum grunni en með framsetningu sem neytendur tengja við og gera tilveruna töluvert meira spennandi.

Jóhannes segist hafa boðið gestum reglulega heim til sín þar sem vörurnar voru prufaðar eftir kúnstarinnar reglum. „Það var nóg til að brjóta ísinn. Það myndaðist alltaf mikil stemning þegar fólk setti saman réttina eftir þrepaskiptum leiðbeiningum. Það var líka litað út fyrir kassann enda leiðbeiningarnar einungis hugsaðar sem viðmið,“ segir Jóhannes, en að sjálfsögðu megi leika sér með hráefnið eins og hugarflugið leyfir. Einungis sé um að ræða leiðbeiningar sem gott sé að styðjast við til að hafa ferlið eins einfalt og kostur er. Þess má hins vegar geta að uppskriftirnar að forréttunum eru þróaðar af dönskum kokki í samvinnu við Bocuse d'or á Íslandi. Margar af vörunum hafa verið framleiddar um árabil hjá Ora en einnig voru þróaðar nýjar vörur sem henta sérlega vel inn í forréttahugmyndina. Helsta nýjungin er fólgin í framsetningunni og hugmyndafræðinni að baki. „Markmiði er að kynna vörurnar fyrir yngri kynslóðinni, gefa henni hugmyndir um hvernig má nota þessar hágæðavörur með einföldum hætti og bera á borð forrétti sem líta út eins og færustu matreiðslumenn myndu gera og um leið bjóða upp á sannkallaða veislu fyrir bragðlaukana. Við erum að gera heiðarlega tilraun til að skapa okkar eigin forréttahefð eins og tíðkast erlendis. Margar af þessum vörum eiga sér sess meðal landsmanna en hér er skrefið tekið umtalsvert lengra og aðferðafræði á borð við það sem neytendur þekkja frá Einn, tveir og elda og Eldum rétt notuð.“

Jóhannes Egilsson, útflutningsstjóri Ora.
Jóhannes Egilsson, útflutningsstjóri Ora.

Hugmyndin er að þú getir einfaldlega gripið forréttaboxið út í búð og án nokkurrar fyrirhafnar og með skotheldum leiðbeiningum boðið upp á spennandi og bragðgóða forrétti á bókstaflega fimm mínútum. Nú eru þrjú forréttabox komin í sölu í verslunum Hagkaupa, en það eru Creamy Masago Bites, sem mætti kalla rjómakennda loðnuhrognabita, Crunchy Caviar Bites (stökkir kavíarbitar) og Lemony Cod Liver Bites (þorsklifrarbitar með sítrónubragði). Hvert forréttabox inniheldur þrjár vörur og einfaldar og þægilegar leiðbeiningar um hvernig skuli bera sig að.

Líflegt vöruþróunarferli

Allar þessar vörur eru Íslendingum að góðu kunnar en hafa þó ekki verið vinsæll kostur meðal yngri kynslóðarinnar en það stendur til bóta enda um að ræða frábæra vöru sem fellur vel að þörfum fólks – þá ekki síst þeirra sem hafa ekki mikinn tíma til að elda, langar að prófa spennandi hráefni eða hafa ekki allt pláss í heiminum til að elda margréttaðar kræsingar.

Í vöruþróunarferlinu settum við okkur þrjár meginreglur sem fylgt er í einu og öllu.

  • Eingöngu er unnið með hágæða íslenskt hráefni.
  • Einfaldar og aðgengilegar uppskriftir.
  • Það skal taka neytandann innan við 10 mínútur að setja forréttinn saman.

Umbúðahönnunin vekur jafnframt athygli, en það var danskt fyrirtæki sem Ora starfaði með sem sá un hönnunina og var markmiðið að leggja áherslu á uppruna hráefnisins og ferskleikann. Umbúðirnar voru meðal annars verðlaunaðar á sýningu í París síðasta haust, sem þykir mikill heiður. Eins hlaut einn af forréttunum verðlaun sem Smávara ársins á sjávarútvegssýningunni í Boston og á sjávarútvegssýningunni í Brussel, sem jafnframt er stærsta sjávarútvegssýning í heimi, uppskar Ora verðlaun fyrir Vörulínu ársins, en þangað koma mörg þúsund kaupendur og framleiðendur hvaðanæva úr heiminum til að kynna vörur sínar og kynnast því nýjasta á markaði sjávarafurða.

„Vörurnar hafa fengið frábærar viðtökur bæði meðal íslenskra neytenda og erlendra. Við hugsuðum vörulínuna aðallega til útflutnings en viljum samt leyfa íslenskum neytendum að kynnast þessum frábæru vörum. Það hefur komið á óvart hvað viðtökurnar hafa verið góðar, bæði meðal íslenskra neytenda og ferðamanna. Við höfum fundið mikinn áhuga meðal ferðamanna – þá ekki síst í Leifsstöð þar sem fólk er greinilega að taka vöruna með sér heim.

Eins og áður segir var eitt af lykilmarkmiðunum að höfða til yngra fólks og þróa vöruhugmynd sem hjálpar nýjum neytendum til að kynnast þessum hágæðavörum og gefa þeim hugmyndir um hvernig megi nota þær með einföldum hætti þannig að úr verði sannkölluð veisla bæði fyrir auga og bragðlauka. „Við unnum með frábæru fagfólki á öllum sviðum við þróun á vörunum og vöruhugmyndinni og gætum ekki verið ánægðari með útkomuna,“ segir Jóhannes að lokum um þessa stórsnjöllu afurð sem vert er að prófa.

Creamy Masago
Creamy Masago
Lemony Cod Liver
Lemony Cod Liver
Crunchy Caviar
Crunchy Caviar
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert