Ísland sópar að sér verðlaunum á EM í súkkulaði

Omnom var stofnað árið 2013 og hóf framleiðslu á súkkulaðivörum …
Omnom var stofnað árið 2013 og hóf framleiðslu á súkkulaðivörum sínum í húsnæði á Austurströnd á Seltjarnarnesi sem áður hýsti bensínstöð Skeljungs. Það var svo í upphafi þessa árs sem fyrirtækið flutti í stærra húsnæði á Hólmaslóð á Granda og við það margfaldaðist framleiðslugeta þess. mbl.is/Styrmir Kári

Omnom-súkkulaði sópaði að sér verðlaunum á Evrópumóti í súkkulaðigerð í gær. Omnom hlaut 11 verðlaun, þar á meðal 5 gullverðlaun.

Gullverðlaunahafar Evrópumótsins fá þátttökurétt á alþjóðlegu súkkulaðihátíðinni sem fer fram seinna á árinu. Alþjóðlegu súkkulaðiverðlaunin eru mestu heiðursverðlaun sem súkkulaði getur hlotið.

Um þrjátíu manna dómnefnd heiðraði nýjustu afurð Omnom með gulli, en Black n´ Burnt Barley kom út í maí á þessu ári. Einnig vann eitt vinsælasta súkkulaði Omnom, Lakkrís + Salt, til gullverðlauna sem og Milk of Madagascar. Öll þessi súkkulaði munu keppa til verðlauna seinna á árinu.

„Þetta er svolítið eins og að vinna EM í súkkulaði,“ segir Kjartan Gíslason súkkulaðigerðarmaður. „Við erum ótrúlega hamingjusöm og hrærð yfir þessum mikla heiðri. Svona verðlaun eru mikil viðurkenning fyrir ungt og íslenskt fyrirtæki.“

Listi yfir verðlaun:

Mikrólögun – Hreint/ Unnið úr upprunabaun - mjólkursúkkulaði

  • Gullverðlaun fyrir Milk of Madagascar

Bragðbætt hvítt súkkulaði

  • Gullverðlaun Lakkrís + Sea Salt
  • Silfurverðlaun fyrir Coffee + Milk

Viðbætt hvítt súkkulaði (t.d. hnetur, súkkulaði, karamella)

  • Gullverðlaun fyrir Black n’ Burnt Barley

Míkrólögun – Hreint/upprunabaun mjólkursúkkulaði

  • Gullverðlaun: Súkkulaðiframleiðandi fyrir Milk of Madagascar
  • Gullverðlaun: Keypt beint af bónda Milk of Madagascar

Míkrólögun – Hreint/upprunaland dökkt súkkulaði

  • Silfurverðlaun fyrir Madagascar 66%
  • Silfurverðlaun fyrir Tanzania 70%

Hreint/upprunaland dökkt mjólkursúkkulaði (Sem inniheldur 50% kakó eða meira)

  • Bronsverðlaun fyrir Dark Milk of Tanzania
  • Bronsverðlaun fyrir Milk of Nicaragua

Viðbætt mjólkursúkkulaði (t.d hnetur, súkkulaði, karamella)

  • Bronsverðlaun fyrir Caramel + Milk
Federico Remondi/Omnom
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert