Girnileg bláberjabaka með mascarpone-kremi

Gómsæt bláberjabaka með súkkulaði og mascarpone-kremi.
Gómsæt bláberjabaka með súkkulaði og mascarpone-kremi. mbl.is/Spise Bedre

Gjöriði svo vel, það er komin bláberjabaka á borðið. Það eru eflaust einhverjir sem láta ekki bjóða sér slíkt góðgæti tvisvar. Þessi er með súkkulaði og mascarpone-kremi – einn, tveir og baka!

Bláberjabaka með mascarpone kremi

Tertudeig:

  • 100 g möndlur
  • 150 g hveiti
  • 75 g flórsykur
  • 125 g smjör
  • 1 egg
  • 100 g dökkt súkkulaði

Mascarpone krem:

  • 1 vanillustöng
  • 250 g mascarpone-ostur
  • 2½ dl rjómi
  • 2 msk. sykur

Skraut:

  • 250 g bláber
  • Börkur af sítrónu

Tertudeig aðferð:

  1. Skolið möndlurnar og hakkið þær mjög fínt í matvinnsluvél.
  2. Bætið hveiti, flórsykri, smjöri og eggi við möndlurnar og geymið blönduna í kæli í 30 mínútur.
  3. Stráið hveiti á borðið og rúllið deiginu út. Leggið deigið í smurt tertufat (um 24 cm) þannig að deigið nái yfir botn og hliðar.
  4. Bakið í ofni við 175° í 15-20 mínútur og leyfið að kólna.
  5. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði. Penslið súkkulaðinu yfir botninn þegar botninn hefur kólnað. Leyfið botninum að standa smá stund í kæli þar til súkkulaðið hefur stífnað.

Mascarpone-krem:

  1. Skerið vanillustöngina langsum og skrapið innan úr með litlum hníf. Merjið vanillukornin með smávegis af sykrinum, þannig að kornin skiljist að. Pískið mascarpone-ostinum saman við rjómann, vanillukornin og restina af sykrinum þar til blandan verður létt í sér. Smyrjið yfir tertubotninn.
  2. Skreytið bökuna í lokin með bláberjum og rífið smá sítrónubörk yfir berin.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert