Ostasamloka undir ítölskum áhrifum

Þessa ostaloku verða allir að prófa.
Þessa ostaloku verða allir að prófa. mbl.is/Andie Mitchell

Ostasamlokur geta verið misjafnar eins og þær eru margar en þessi er nokkrum stjörnum betri en venjuleg loka með skinku og osti. Sólþurrkaðir tómatar og havartí-ostur setja sinn svip á þessa ásamt parmaskinkusneiðum.

Ostasamloka undir ítölskum áhrifum (fyrir 2)

  • 4 brauðsneiðar (af góðu brauði)
  • 2 parmaskinkusneiðar
  • ¼ þistilhjörtu í krukku, skorið niður
  • 2 msk. sólþurrkaðir tómatar, skornir niður
  • Havartí-ostasneiðar
  • Bökunarolía

Aðferð:

  1. Leggið tvær brauðsneiðar á skurðarbretti. Setjið havartí-ost á þær báðar og því næst skinkuna, þistilhjörtun og sólþurrkuðu tómatana. Setjið aðra umferð af havartí-ostinum yfir og hinar brauðsneiðarnar yfir.
  2. Spreyið bökunarolíu á brauðsneiðarnar og komið fyrir á miðlungsheitri pönnu þar til brauðið hefur tekið lit og osturinn bráðnað – má líka vera smjör á pönnunni í stað bökunarolíu. Muna að snúa brauðinu við á pönnunni (sirka 8 mínútur í allt). Skerið til helminga og berist fram strax.
mbl.is/Andie Mitchell
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert