Girnilegt granola með þurrkuðum ávöxtum

mbl.is/Columbus Leth

Heimalagað granola er bara svo rosalega gott, þá út á jógúrtina þína á morgnana eða bara eintómt. Frábært snakk þegar maginn kallar á eitthvað milli mála.

Girnilegt granola með þurrkuðum ávöxtum

  • 400 g fimmkornablanda (t.d. frá Til hamingju)
  • 75 g möndlur
  • 75 g heslihnetur
  • 50 g sólblómafræ
  • 3 msk. hörfræ
  • 4 msk. hunang
  • 100 g þurrkuð trönuber
  • 100 g gull rúsínur

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 150°. Dreifið fimmkornablöndunni, grófhökkuðum möndlum, hnetum, sólblómafræjum og hörfræjum á bökunarplötu. Dreifið hunangi yfir og bakið í 20 mínútur. Hrærið í blöndunni inn á milli meðan hún er í ofninum.
  2. Bætið strax við þurrkuðum trönuberjum og rúsínum þegar blandan kemur úr ofninum. Látið alveg kólna og geymið í lofttæmdu íláti.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert