Samfélagsmiðlastjarnan Wendy Hu á sér dyggan hóp fylgjenda sem fylgjast með henni í sínu daglega amstri þar sem hún fjallar iðulega um hollan mat, heilbrigðan lífstíl og fallega hluti.
Eldhúsið hennar er afar fagurt og einfalt en það er í grunninn úr IKEA-skápum með framhliðum frá fyrirtækinu Semi Handmade Doors sem sérhæfir sig í öðruvísi hurðum og framhliðum sem passa á skápa frá IKEA og fleiri framleiðendum.
Útkoman er hin glæsilegasta eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Instagram Wendy Hu er hægt að nálgast HÉR.
Bloggsíðu Wendy Hu er hægt að nálgast HÉR.