Töfrabragðið sem þrífur pönnuna á 20 mínútum

Pannan verður eins og ný.
Pannan verður eins og ný. mbl.is/Apartment Therapy

Hver kannast ekki við brenndar matarleifar í pottum og pönnum? Oft látum við liggja yfir nótt til að láta vatn og uppþvottalög vinna á leifunum en það getur reynst þrautin þyngri.

Hægt er að leysa þennan vanda á fremur fljótlegan hátt. Þá er töfralausnin sú að setja vel af sykri (2 bolla), uppþvottalög og vatn í pottinn/pönnuna og láta suðuna koma upp. 

Við það losna matarleifarnar og potturinn og pannan verða eins og ný!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert