Girnileg baka með tömötum og aspas

Þessi er of girnileg til að standast.
Þessi er of girnileg til að standast. mbl.is/Christina Uhlin

Ef hráefnið er nógu girnilegt þarf ekki meira til eins og þessi ljúffenga baka með tómötum, aspas, púrrulauk og rjómaosti sýnir. Góðar bökur eru frábærar til að brjóta upp á vikuna fyrir alla fjölskylduna.

Girnileg baka með tömötum og aspas (fyrir 6)

  • 125 g smjör
  • 3 dl hveiti
  • Salt á hnífsoddi
  • Nokkrir dropar af köldu vatni

Fylling:

  • ½ púrrlaukur
  • 10 grænir aspas
  • 150 g rifinn ostur
  • 200 g rjómaostur
  • Salt og pipar
  • 300 g litlir tómatar

Aðferð:

  1. Hnoðið allt hráefnið saman í tertudeigið með höndunum eða í matvinnsluvél. Látið deigið standa í 20 mínútur og kveikið á ofninum við 200°.
  2. Setjið deigið í tertuform (24 cm) og passið að það fari út í alla kanta. Bakið í 10 mínútur. Takið formið úr ofninum og lækkið hitann í 175°.
  3. Skerið púrrulauk og aspas í litla bita og hrærið saman við rjómaostinn, rifna ostinn og salt og pipar.
  4. Hellið fyllingunni yfir forbakaða tertubotninn og raðið tómötum á toppinn.
  5. Bakið áfram á 175° í 30-40 mínútur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert