Vinsælustu bollar landsins nú í fleiri útgáfum

Nýir bollar í nýjum litum frá Design Letters.
Nýir bollar í nýjum litum frá Design Letters. mbl.is/Design Letters

Stafabollarnir vinsælu frá danska fyrirtækinu Design Letters hafa dreift úr sér í alls kyns öðrum varningi eins og diskum, vatnsflöskum, sængurverum og blómapottum svo eitthvað sé nefnt. Letrið sjálft er hannað af hinum heimsfræga arkitekt Arne Jacobsen sem skilur eftir sig fjöldann allan af klassískum húsgögnum og byggingum.

Og nú eru nýir bollar komnir á markað sem bera skilaboð með sér. „LOVE, SMILE, WEEKEND og HELLO“ eru yfirskriftirnar á nýjum bollum sem fáanlegir eru í fjórum litum, ekki bara í svörtu og hvítu eins og við erum vön að sjá frá þeim. 

LOVE, SMILE, WEEKEND og HELLO - skilaboðin eru skýr.
LOVE, SMILE, WEEKEND og HELLO - skilaboðin eru skýr. mbl.is/Design Letters
mbl.is/Design Letters
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert