Sykur er gagnlegri en þig grunar

Sykur er ekki bara í sætabrauð, hann má nota á …
Sykur er ekki bara í sætabrauð, hann má nota á marga vegu. mbl.is/Isabellas

Sykur er til á nær öllum heimilum og flest reynum við eftir megni að borða sem minnst af honum. Hann getur hins vegar reynst mun gagnlegri en þig grunaði.

  1. Næst þegar þú kaupir helgarvöndinn prófaðu þá að hræra 3 tsk. af sykri saman við 2 msk. af ediki og heitt vatn og leyfðu blómunum að standa þar í smá stund áður en hann fer í vasa. Sykurinn nærir stönglana, edikið stoppar óþarfa bakteríur og vöndurinn mun lifa lengur.
  2. Einn sykurmoli í kökudósina mun halda smákökunum eða öðru góðgæti lengur fersku – alveg þess virði að prófa það.
  3. Grasgrænku í fötum eftir léttan leik utandyra getur verið erfitt að tækla. Næst skaltu blanda saman sykri og heitu vatni þar til blandan verður þykk og leggðu á blettinn. Leyfðu blöndunni að liggja í 2 tíma og skelltu svo í þvottavélina.
mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert