Geggjuð grísk jógúrt með heimagerðu granóla

Það er fátt betra en gott granóla sem er þeim kostum búið að innihalda ekki óhóflegt magn af sætindum eins og oft vill vera. Þessi uppskrift ætti að koma öllum vel af stað inn í daginn.

Grísk jógúrt með heimagerðu granóla

Mér finnst þetta dásamlegur morgunverður, hollur og góður sem endist vel. Ég geri granólað oftast á sunnudögum og á til fyrir vikuna en granóla sem fæst í búð er oft svo sætt og þess vegna miklu hollara að útbúa sitt eigið. Ég er hrifin af því að nota grísku jógúrtina frá Örnu og leik mér aðeins með bragðtegundirnar, ég notaði með súkkulaði og ferskju í þennan rétt en notaðu endilega þá jógúrt sem hentar þér best, settu svo smá granóla og ber yfir og njóttu vel! – Anna Eiríks

Fyrir: Nokkra skammta

Undirbúningur: 10 mínútur

Innihald

  • 3 bollar tröllahafrar
  • 1/2 bolli fræ að eigin vali
  • 1/2 bolli saxaðar möndlur
  • 2 tsk. vanilluduft
  • 3/4 bolli lífrænt hlynsíróp
  • 2 tsk. vanilludropar (vanilla extract)

Aðferð

Blandið öllu vel saman í skál og setjið á smjörpappír. Bakið í 150° heitum ofni í 20-30 mínútur, fylgist vel með og hrærið í granólanu af og til svo það brenni ekki. Kælið og geymið í glerkrukku með loki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert