Réð atvinnumenn til að taka til

Leikkonan Busy Phillips fékk skipulagssérfræðinga til að taka til í …
Leikkonan Busy Phillips fékk skipulagssérfræðinga til að taka til í búrskápnum hjá sér. mbl.is/samsett mynd

Búrskápar eru mikið þarfaþing en séu þeir ekki skipulagðir reglulega geta þeir auðveldlega breyst í skrímsli eins og gerðist hjá leikkonunni Busy Philipps. Philipps - sem er betur þekkt sem hin ameríska Tobba Marínós - birti þessar myndir af búrskápnum sínum eins og hann leit út og síðan eftir að skipulagssérfræðingarnir voru búnir að ljúka störfum.

Philipps var að vonum ánægð með útkomuna og greinilegt að litaröðun í búrskápum gerir kraftaverk.  

Svona leit búrskápurinn út áður en tekið var til í …
Svona leit búrskápurinn út áður en tekið var til í honum. mbl.is/Instagram
Og hér er búið að taka til og litaraða eftir …
Og hér er búið að taka til og litaraða eftir kúnstarinnar reglum. mbl.is/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert