Þegar ástríðan yfirtekur allt annað

Veitingastaðurinn Stedsans er staðsettur í miðjum skógi við lítið vatn …
Veitingastaðurinn Stedsans er staðsettur í miðjum skógi við lítið vatn í Svíþjóð. mbl.is/Inge Skovdal

Langar þig að prófa nýjan veitingastað í nærandi umhverfi? Í Svíþjóð finnur þú algjöra perlu sem heitir Stedsans og er staðsett við rólegt vatn úti í skógi, þar sem allt er hugsað út frá umhverfinu sjálfu. Þetta er hinn fullkomni staður til að aftengjast stressinu í borginni og hlaða batteríin upp á nýtt. Það skín svo í gegn þegar ástríðan yfirtekur og fólk framkvæmir hugmyndir sínar á stað sem þessum.

En Stedsans er ekki bara veitingastaður, því þarna er líka boðið upp á gistingu í krúttlegum hýsum sem rúma tvo. Litlar hænur vappa um svæðið og gefa egg á morgunverðarborðið sem þykir hreint lostæti – heimabakað brauð, granola, ferskt grænmeti, ávextir og ber sem tínd eru af trjánum í kring. Einnig er fljótandi sauna, heitur pottur og þrír kanóar fyrir þá sem það vilja – okkur langar þetta allt saman.

Náttúran frá öllum hliðum séð á meðan þú gæðir þér …
Náttúran frá öllum hliðum séð á meðan þú gæðir þér á gúrme-mat. mbl.is/Inge Skovdal
Það er boðið upp á gistingu í litlum kofum.
Það er boðið upp á gistingu í litlum kofum. mbl.is/Stedsans
Hversu unaðslegt væri að gista hér?
Hversu unaðslegt væri að gista hér? mbl.is/Stine Christiansen
Maturinn á Stedsans er afar girnilegur.
Maturinn á Stedsans er afar girnilegur. mbl.is/Stine Christiansen
mbl.is/Stedsans
Úti á vatninu er sauna og heitur pottur, og á …
Úti á vatninu er sauna og heitur pottur, og á svæðinu má einnig fá afnot af kanó. mbl.is/Stine Christiansen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert