Einfalt en ómótstæðilegt eldhús

Eldhúsið er sérlega opið og bjart. Takið eftir hvernig brúni …
Eldhúsið er sérlega opið og bjart. Takið eftir hvernig brúni liturinn kallast á en hann er annars vegar í vegghillunum og hins vegar undir eyjunni. mbl.is/Elle Decor

Þetta eldhús er að finna í borg draumanna - sjálfri New York en eigandi þess keypti gamalt vöruhús í Soho hverfinu og reif flest allt út sem hann gat. 

Ákveðið var að halda megin karaktereinkennum húsnæðisins en opna það eins mikið og kostur var. Lífrænn módernismi er orð sem var notað en útkoman er algjörlega frábær. 

Eldhúsið er undurfagurt og tónar ótrúlega vel við rýmið. Hlýr viðurinn í bland við hvíta litinn og marmarann. Sterk hönnunn með áhrifaríkum undirtónum þar sem einfaldleikinn ræður ríkjum. 

Heimild: Elle Decor

Borðstofuborðið er beint fyrir framan eldhúsið sem býður upp á …
Borðstofuborðið er beint fyrir framan eldhúsið sem býður upp á skemmtilega stemningu. mbl.is/Elle Decor
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert