Eldhúsið hjá Sophiu Amoruso

Hér má sjá hvernig Sophia Amoruso leit út í Girlboss …
Hér má sjá hvernig Sophia Amoruso leit út í Girlboss þáttunum.

Gallharðir tískuspekúlantar og Netflix-unnendur ættu að þekka Sophiu Amoruso enda er hún meistarinn á bak við Girlboss þættina sem segja frá því hvernig Sophiu tókst að stofna tískuveldið Nasty Gal inn á Ebay og verða stórveldi í tískuheiminum.

Hennar persónulegi stíll er algjörlega stórkostlegur; djarfur og litskrúðugur auk þess sem hún hefur auga fyrir smaátriðum sem fáir hafa. Því tók hjartað í mér aukaslag þegar ég sá myndir af eldhúsinu hennar í tímaritinu Elle Decor. Öll íbúðin er reyndar geggjuð en hér einblínum við á eldhús og Sophia Amoruso olli ekki vonbrigðum. 

Litapallettan er reyndar ekki sú sem ég bjóst við en passar vel við allt þarna. Eldhúsið er samt alveg í hennar anda því hún er mikið selskapsljón sem segist reglulega bjóða fólki heim í mat. Því sé eldhúsið ákaflega opið og borðstofuborðið við hliðina á því þannig að hún sé í stöðugum samskiptum við gestina. Eins noti hún borðstofuborðið mikið sem skrifborð.

Það vakti líka athygli mína að engin hefðbundin heimilistæki blasa við. Þannig er ísskápurinn falinn sem og ofninn. Ákaflega snjallt... ekki auðvitað allra en sjúklega lekket engu að síður.

Sophia kaus að hafa eldhúsið opið þar sem hún fær …
Sophia kaus að hafa eldhúsið opið þar sem hún fær mikið af gestum. Takið eftir því að öll stærri heimilistæki eru falin. mbl.is/Elle Decor
Borðstofuborðið er við hliðina á eldhúsinu. Takið eftir gluggunum og …
Borðstofuborðið er við hliðina á eldhúsinu. Takið eftir gluggunum og útsýninu. mbl.is/Elle Decor
Bókin #Girlboss sem sló rækilega í gegn.
Bókin #Girlboss sem sló rækilega í gegn.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert