Krispí kanil & epla smákökur

Þessi uppskrift toppar margar aðrar smákökuppskriftir.
Þessi uppskrift toppar margar aðrar smákökuppskriftir. mbl.is/Domesticallyblissful.com

Þegar haustið skellur á fer hugurinn og hjartað beint inn í eldhús til að útbúa eitthvað gotterí fyrir sig og sína. Eitthvað til að smjatta á með ísköldu mjólkurglasi - og þá er þessi uppskrift tilvalin að prófa.

Krispí kanil-epla smákökur

  • 2 lítil epli
  • 1 tsk kanill
  • 2 msk púðursykur
  • 3 msk hveiti
  • 2 bollar hveiti
  • 4  tsk matarsódi
  • ½ tsk salt
  • 8 msk saltað smjör, kalt
  • 1 bolli súrmjólk 
  • ¼ tsk vanilludropar
  • 1 msk mjólk

Aðferð:

  1. Hitið ofninn á 220° og setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
  2. Skerið eplin í þunnar skífur og blandið saman við kanil, púðursykur og 3 msk hveiti og setjið til hliðar.
  3. Setjið öll þurrefnin í blandara og blandið vel saman. Skerið smjörið í þunnar sneiðar og setjið út í blandarann með þurrefnunum. Blandið vel saman þar til blandan verður pínu kekkjótt og setjið þá í skál ásamt kanileplunum og bætið við súrmjólk. Hrærið allt vel saman.
  4. Stráið smá hveiti á borðið og deigið þar á. Hnoðið deigið í ferhyrning og skiptið í tvennt. Bætið við hveiti eftir þörfum. Passið að hnoða ekki of mikið til að deigið haldi sér „léttu“.
  5. Mótið deigið með höndunum í ferhyrninga, sirka 2-2½ cm á þykktina. Skerið út hringi í deigið (gott er að nota kökumót eða jafnvel glas) og leggið á bökunarplötu.
  6. Bakið í 13-15 mínútur þar til ljós-gylltir á lit.
  7. Á meðan kökurnar eru í ofninum, pískið þá saman ¾ bolla af flórsykri, ¼ tsk vanilludropum og 1 msk mjólk.
  8. Leyfið kökunum aðeins að kólna áður en kremið er sett á.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert