Orri komst áfram í 20 manna úrslit

Orri Páll sést hér blanda drykk í keppninni.
Orri Páll sést hér blanda drykk í keppninni. mbl.is/aðsend mynd

Orri Páll Vilhjálmsson frá Apótekinu er á meðal 20 efstu sem komast áfram af 58 barþjónum sem taka þátt í keppninni í Berlín. Þetta er 10 árið sem World Class barþjónakeppnin fer fram og í þriðja sinn sem Íslendingar senda barþjón út í keppnina. Þetta er besti árangur Íslendinga hingað til.

Barþjónar mættu í dag fleiri áskorunum sem eru sérhannaðar til að draga fram hæfileika, færni og hugmyndaflug þeirra. Johnnie Walker keppnin fór fram í dag með þemanu “Flavour of a Nation” eða “þjóðarbragðið” og að henni lokinni kom í ljós hverjir voru á meðal 20 efstu.

Instagram til að fylgjast með keppninni:

@Worldclass.is

@Mapledrinks

@orripall

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert