Sandkaka með gini og tonic

Gjörið svo vel – fullorðinskaka af bestu gerð.
Gjörið svo vel – fullorðinskaka af bestu gerð. mbl.is/Betina Hastoft

Gin og tonic fellur eflaust seint úr gildi og því ekki að nota það í baksturinn heima – til dæmis í nýbakaðri sandköku með glassúr?

Sandkaka með gini og tonic

  • 100 g mjúkt smjör
  • 200 g sykur
  • 3 egg
  • 200 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 1 lime
  • ½ dl gin

Glassúr:

  • 200 g flórsykur
  • 3 msk. tonic
  • 2 msk. gin
  • 1 lime

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°.
  2. Pískið smjör og sykur þar til blandan verður loftkennd og hvít. Pískið eggin út í, eitt í einu.
  3. Sigtið hveitið og lyftiduftið út í deigið. Skolið lime og rífið börkinn fínt út í deigið með rifjárni. Bætið við gini og blandið vel saman.
  4. Komið deiginu í smurt form eða klæðið það með bökunarpappír.
  5. Bakið kökuna fyrir miðjum ofni í 45-50 mínútur. Notið bökunarnál í miðja köku til að kanna hvort hún sé tilbúin, ef það situr ekki deig eftir á nálinni, þá er hún tilbúin. Látið kólna á grind.
  6. Takið kökuna úr forminu.
  7. Hrærið flórsykri saman við gin og tonic þar til glassúrinn verður þykkur. Búið til lítil göt í kökuna og dreifið glassúrnum yfir.
  8. Rífið niður börkinn af lime og stráið yfir glassúrinn.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert