Mathöll opnar í Kringlunni

Spennandi tímar eru fram undan í Kringlunni en þar verður rýminu sem áður hýsti NK Café breytt í mathöll. Stjörnutorg mun jafnframt fá andlitslyftingu í náinni framtíð en ætlunin er að útlit mathallarinnar muni smitast yfir á Stjörnutorgið.

Það verður því skemmtilegt heildarútlit á svæðinu þar sem mathöllin mun sameinast Stjörnutorgi. Í mathöllinni verður áherslan lögð á litla staði og einyrkja eins og tíðkast og mun auka mjög fjölbreytni veitinga í Kringlunni og mögulega skapa fjölbreyttasta veitingarými landsins. Mathallirnar tvær sem fyrir eru hér á landi; á Hlemmi og úti á Granda, hafa þegar fest sig í sessi og njóta mikilla vinsælda.

Stefnt er að opnun fyrri hluta næsta árs en ekki hefur enn fengist staðfest hversu margir veitingaaðilar verða í mathöllinni nýju.

Vísir greindi fyrst frá.

Þorvaldur Örn Kristmundsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert