Matardiskarnir sem elítan elskar

Diskarnir frá Articture eru eins og lítil málverk undir mat.
Diskarnir frá Articture eru eins og lítil málverk undir mat. mbl.is/Articture

Matardiskar eru eins merkilegir og margt annað í eldhússkápunum og ekki skemmir fyrir ef þeir eru fallegir. Það hefur verið áberandi síðustu misseri að sjá einlit „gróf“ matarstell eins og frá hinum góðkunna BITZ sem hefur notið mikilla vinsælda hér á landi.

En það er ekki oft sem við sjáum skrautlega matardiska sem þessa, í það minnsta ekki hér á landi. Þessir eru frá Articture og eru eins litríkir og páfugl! Það er varla að maður tími að setja á þá mat.

Diskarnir þykja forkunnarfagrir enda spurnin eftir þeim mikil og ekki óalgengt að sjá þá á heimilum hinna ríku og frægu. 

Dáleiðandi munstur í þessum diskum.
Dáleiðandi munstur í þessum diskum. mbl.is/Articture
Fyrir þá sem vilja liti á matarborðið. Þessir eru einstaklega …
Fyrir þá sem vilja liti á matarborðið. Þessir eru einstaklega smart að blanda saman við einlitar skálar. mbl.is/Articture
Marmaramunstur fellur seint úr gildi.
Marmaramunstur fellur seint úr gildi. mbl.is/Articture
Gylling á endunum setur punktinn yfir i-ið.
Gylling á endunum setur punktinn yfir i-ið. mbl.is/Articture
mbl.is/Articture
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert