Súkkalaðikaka með blautri miðju

mbl.is/Eva Laufey

Góð súkkulaðikaka stendur ætíð fyrir sínu - ekki síst ef höfundur hennar er sjálf Eva Laufey. Þessi uppskrifti ætti því engan að svíkja.

Súkkalaðikaka með blautri miðju

  • 6 kökur
  • 120 g smjör
  • 200 g súkkulaði (ég notaði suðusúkkulaði)
  • 30 g hveiti
  • 60 g flórsykur
  • salt á hnífsoddi
  • 2 eggjarauður
  • 2 egg

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 210°C
  2. Smyrjið lítil form mjög vel.
  3. Bræðið smjör og saxið súkkulaði smátt, bætið súkkulaðinu saman við og bræðið við vægan hita.
  4. Sigtið saman þurrefni.
  5. Pískið egg og eggjarauður saman í annarri skál.
  6. Hellið eggjablöndunni saman við hveitiblönduna og hrærið.
  7. Næsta skref er að hella deiginu út í skál með bræddu súkkulaði og hræra öllu mjög vel saman.
    Skiptið deiginu niður í form og bakið við 210°C í 10 – 12 mínútur. (ég bakaði mínar í nákvæmlega 12 mínútur og þær voru fullkomnar)

*Ofnar eru mjög misjafnir og mögulega þurfið þið aðeins minni eða meiri baksturstíma, þið finnið það best sjálf. Ef þið viljið æfa ykkur þá mæli ég með því að baka eina köku í einu, en með því getið þið fundið út hvaða tími sé bestur í ykkar ofni.

mbl.is/Eva Laufey
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert