Tilbúnir matarpakkar nú fáanlegir í verslunum

Nú er hægt að kaupa tilbúna matarpakka í verslunum Nettó.
Nú er hægt að kaupa tilbúna matarpakka í verslunum Nettó. mbl.is

Nú geta aðdáendur tilbúinna matarpakka tekið gleði sína því enn er verið að bæta þjónustu við neytendur en nú er hægt að kaupa staka matarpakka í verslunum Nettó.

Tilbúnir matarpakkar njóta mikilla vinsælda hér á landi og alla jafna hefur þurft að panta matinn með fyrirvara eða sækja á staðinn. 

Ljóst er að þægindin fyrir neytandann eru mikil en að sögn talsmanna Nettó er um að ræða hágæðavöru þar sem gæðin eru höfð að leiðarljósi auk þess sem um mjög hagkvæman kost sé að ræða. 

Matarsóun sé þannig nánast engin þegar tilbúnir matarpakkar séu keyptir en talið er að innihaldi eins af hverjum þremur innkaupapokum sé hent í ruslið. 

Almennt er reiknað með að eldun réttanna taki aldrei meira en 30 mínútur og því ljóst að hér er kominn prýðiskostur fyrir upptekið fólk í amstri dagsins. 

mbl.is/einntveir.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert