Flatey opnar í Mathöllinni á Hlemmi

mbl.is/Facebook

Þau gleðitíðindi berast að Flatey pizza sé að opna í Mathöllinni Hlemmi. Sá böggull fylgir reyndar skammrifi að Ísleifur heppni mun loka útibúi sínu en ísinn verður áfram fáanlegur í Melabúðinni, Frú Laugu, Nóatúni, Fjarðarkaupum og Vínberinu.

Þetta er ekki eina breytingin sem orðið hefur á Hlemmi mathöll því mexíkóski veitingastaðurinn La Poblana lokaði fyrir skemmstu. Það eru því töluverðar breytingar í gangi á Hlemmi en þrátt fyrir missinn af góðum stöðum má sannarlega gleðjast yfir komu Flateyjar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert