Súkkulaði- og berjabomba Gígju

„Þessi kaka er dásamlega góð og ekki skemmir það fyrir hvað hún er falleg. Æðisleg í veisluna og fyrir hvaða tilefni sem er. Kökubotnarnir eru afar auðveldir og það er sniðugt að gera þá daginn fyrir og eiga þá bara eftir að setja kökuna saman svo að berin séu sem ferskust.“ – Gígja S. Guðjóndóttir.

Súkkulaði- og berjabomba Gígju

Kaka:

  • 3 bollar hveiti
  • 3 bollar sykur
  • 1 1/2 bolli kakó
  • 1 matskeið espresso duft
  • 1 matskeið matarsóti
  • 1/2 matskeið lyftiduft
  • 1 teskeið salt
  • 4 egg
  • 300 g grísk jógúrt frá
  • Gott í matinn
  • 2 bollar vatn
  • 1/2 bolli olía
  • 1 matskeið vanilludropar

Rjómi:

  • 500 ml rjómi
  • 1/2 flórsykur
  • 1 teskeið vanilludropar

Súkkulaðibráð:

  • 200 g súkkulaði
  • 150 g smjör

Ber:

Jarðarber, bláber og hindber eða þau ber sem ykkur finnst góð.

Aðferð:

Kaka:

Öll þurrefnin eru sett í hrærivélina og þeim létt blandað saman með sleif.

Næst fer allt blauta innihaldið í hrærivélina og allt hrært saman.

Kökudeiginu er skipt jafnt á milli í þrjú smurð hringform og inn í ofn í 30-35 mínútur.

Rjómi:

Rjóminn er þeyttur og flórsykri og vanilludropum er bætt við í lokin og hrært.

Súkkulaðibráð:

Smjörið er brætt í potti þar til það byrjar að búbbla, þá er því hellt yfir mulið súkkulaðið í hitaþolinni skál og hrært þar til það verður silkimjúkt. Athugið að útbúa ekki súkkilaðibráðina fyrr en þið eruð tilbúin að stafla kökunni upp, því súkkulaðið stífnar.

Ber:

Berin eru skorin niður að vild, best að hafa þau frekar smátt skorin fyrir miðjuna en hægt að hafa þau heil á toppnum.

Þá þarf bara að stafla kökunni:

Kökubotn / súkkulaði / rjómi / ber ... og svo koll af kolli.

Gígja með kökuna fögru.
Gígja með kökuna fögru. Eggert Jóhannesson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert