Kjúklingaréttur sem stelur senunni

mbl.is/Delish

Í þessum dásemdarrétti er bæði að finna kjúkling og beikon. Það þýðir einfaldlega að þetta er mögulega fullkominn réttur við hvert tilefni.

Kjúklingaréttur sem stelur senunni

  • 4 sneiðar beikon
  • 600-700 g kjúklingalæri með skinni og beini
  • salt og pipar
  • 1 rauðlaukur, saxaður
  • 200 g sveppir, gróft saxaðir
  • 1 lítið búnt af timían
  • 180 ml kjúklingasoð
  • 180 ml rjómi
  • 1/3 bolli rifinn parmesanostur
  • safi úr 1/2 sítrónu

Fínt söxuð steinselja til skreytingar

Aðferð:

  1. Steikið beikonið uns það er orðið vel stökkt eða í 8 mínútur eða svo. Þerrið sneiðarnar með eldhúspappír og geymið um það bil tvær matskeiðar af fitunni.
  2. Kryddið kjúklinginn vel með salti og pipar. Hitið pönnuna upp í miðlungsháan hita og byrjið á því að steikja kjúklinginn þannig að skinnið snúi niður. Steikið uns gullinbrúnt og fallegt eða í 5 mínútur eða svo. Snúið þá kjúklingnum við og steikið í 5 mínútur til viðbótar. Takið kjúklinginn af pönnunni og setjið til hliðar.
  3. Setjið laukinn á pönnuna og steikið þar til hann fer að mýkjast eða í um 5 mínútur. Bætið þá sveppunum saman við og kryddið með salti og pipar. Látið steikjast og hrærið vel og reglulega í pönnunni. Bætið því næst við kjúklingsoði, rjóma, parmesan, timíani og sítrónusafa. Látið suðuna koma upp og látið malla í um 5 mínútur.
  4. Setjið kjúklinginn aftur á pönnuna og látið malla þar til kjúklingurinn er orðinn fulleldaður og sósan hefur þykknað eða í 10 mínútur.
  5. Saxið beikonið niður og sáldrið yfir kjúklinginn.
  6. Skreytið með steinseljunni og berið fram.
mbl.is/Delish
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert