Svalasta barbídúkka sem sést hefur

Ree Drummond ásamt dúkkunni góðu.
Ree Drummond ásamt dúkkunni góðu. mbl.is/Mattel

Það er ekki á hverjum degi sem miðaldra suðurríkjakona fær draum sinn um að breytast í barbídúkku uppfylltan. En það er einmitt það sem gerðist og nú skulum við segja þessa frétt almennilega.

Mattel hefur sett á markað nýja barbídúkku sem er eftirmynd Pioneer Woman sem er í daglegu tali betur þekkt sem eldhúsgyðjan Ree Drummond.

Fyrir þá sem ekki þekkja sögu Drummond þá er hún fyrrverandi New York-nagli sem varð ástfangin af kúreka og flutti með honum til suðurríkja Bandaríkjanna á búgarðinn hans. Þar hóf hún að unga út börnum og elda mat en í hjáverkum hélt Drummond úti blogginu Pioneer Woman sem varð fljótlega gríðarlega vinsælt. Þar sagði hún sögur af sveitalífinu á skemmtilegan hátt og deildi uppskriftum. Síðan er liðinn meira en áratugur og Drummond er einn þekktasti sjónvarpskokkur Bandaríkjanna. Hún er með þætti á FoodTV Network, hefur gefið út fjölda bóka, hannað eigin eldhúslínu og svo gæti ég lengi talið. Alltaf er Drummond jafn sjarmerandi og þjóðin elskar hana.

Það kemur samt á óvart að Mattel skuli velja miðaldara konu sem næstu barbífyrirmynd en við fögnum þessu einlæglega. Drummond-dúkkan kemur að sjálfsögðu hlaðin glæsilegum aukahlutum og fyrir börnin sem elska fátt heitar en að matbúa er þessi nýjasta barbídúkka hrein himnasending.

Settið er sannkallaður fjársjóður. Hvern dreymir ekki um svona ísskáp?
Settið er sannkallaður fjársjóður. Hvern dreymir ekki um svona ísskáp? mbl.is/Mattel
Flottasta Barbie sett sem sést hefur?
Flottasta Barbie sett sem sést hefur? mbl.is/Mattel
Fjöldi aukahluta er fáanlegur.
Fjöldi aukahluta er fáanlegur. mbl.is/Mattel
mbl.is/Mattel
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert