Hinn fullkomni aukahlutur á KitchenAid kominn á markað

mbl.is/KitchenAid

Hver elskar ekki KitchenAid-aukahlutina; þessar græjur sem festar eru við vélina og umbreyta henni á örskotsstundu í eitthvað allt annað en hrærivél?

Þið vitið hvað við erum að tala um!

Nú er kominn nýr aukahlutur á markað og gott ef hann er ekki sá besti til þessa. Við erum að tala um hið fullkomna hjálpartæki fyrir bakara: Vigt með innbyggðu sigti.

Þetta þýðir að allur bakstur verður eftirleiðis auðveldari og aldrei aftur verður boðið upp á kökur með ósigtuðu hveiti!

mbl.is/KitchenAid
mbl.is/KitchenAid
mbl.is/KitchenAid
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert