Svona losnar þú við svitabletti úr skyrtum

Það er einfaldara en þú heldur að losna við svitabletti …
Það er einfaldara en þú heldur að losna við svitabletti úr skyrtum. mbl.is/Alamy

Skyrtur! Flíkin sem við notum hversdags og spari á það til að fá litla gula svitabletti í kragann og undir handarkrikana. Eitthvað sem við einfaldlega komumst ekki hjá. Það er þó algjör óþarfi að gráta lengi yfir því og borga fyrir hreinsun þegar lausnina er að finna heima.

Nuddaðu uppþvottalegi laust á blettina og settu í poka yfir nótt. Skolaðu skyrtuna upp úr köldu vatni og hengdu hana rennandi blauta upp – þá kemstu jafnvel hjá því að strauja þegar hún þornar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert