Sætkartöflusúpa með beikoni og fetaosti

mbl.is/María Gomez

Þessi súpa er alveg tilvalin á köldum dögum þegar mann vantar eitthvað gott til að hlýja kroppnum. Hún er ofboðslega bragðgóð og ekki skemmir fyrir að það er ofurauðvelt að gera hana.

Það er Maria Gomez á Paz.is sem á heiðurinn að henni en matarbloggið hennar er hægt að nálgast HÉR.

Sætkartöflusúpa með beikoni og fetaosti

  • Stór sæt kartafla (800-900 gr.) skorin langsum í tvennt með hýðinu á
  • 2 tsk. góð ólífuolía (ég notaði Cirio Extra Virgin en finnst hún best)
  • 1/2 gulur laukur smátt skorin
  • 2 hvítlauksgeirar marðir (lemja með hníf á þá til að opna)
  • 1/2 tsk. chili-duft
  • 1/2 tsk. gróft salt
  • 1/4 tsk. cumin (athugið ekki kúmen eins og fer í brauð)
  • 1/4 tsk. kanill
  • 1 tsk. Hvítlaukskryddblanda frá Bezt á flest
  • 900-1000 ml soðið vatn (eftir hvaða þykkt þið viljið)
  • 2-3 kjúklingateningar

Til að toppa með: 

  • Lítið bréf af beikon
  • Fetakubbur
  • Kryddjurtir að eigin vali

Aðferð:

  1. Setjið sætu kartöflurnar með sárið niður á matardisk og hellið 1/2 bolla af vatni yfir.
  2. Þekið vel með plastfilmu og setjið í örbylgjuofn á hæsta styrk í 15 mínútur.
  3. Leyfið að kólna meðan laukur er skorinn og hvítlaukur marinn.
  4. Setjið svo olíuna í súpupott yfir miðlungshita og skellið lauk og hvítlauk út á í 2 mínútur, eða þar til orðnir mjúkir (passið að brúna ekki né brenna).
  5. Setjið 2-3 kjúklingateninga í 900-1.000 ml af soðnu vatni og leyfið teningunum að leysast upp.
  6. Skafið nú allt innan úr kartöflunum og hendið hýðinu
  7. Setjið kartöflurnar, kryddið og kjúklingasoðið í pottinn með lauknum og látið ná suðu. Þegar suðan er komin upp slökkvið þá undir og maukið saman með töfrasprota eða í blandara/matvinnsluvél.
  8. Setjið aftur á heita hellu þar til sýður og hrærið á meðan.
  9. Setjið í súpuskálar og toppið með fetaosti, steiktu beikoni og kryddjurtum að eigin vali. (Ég notaði ferkst timian).
mbl.is/María Gomez
mbl.is/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert