Best geymda leyndarmál ofurbakaranna

Til er það leyndarmál sem er svo vel geymt að sjálf komst ég ekki að því fyrr en í fyrra! Leyndarmálið er að setja súkkulaðibúðing frá Royal saman við súkkulaðikökuna og verður hún þá að sögn sérfróðra miklu betri. Hér er að sjálfsögðu átt við búðingsduftirð – beint úr pakkanum – en ekki tilbúinn búðing eins og einhverjir gætu haldið. Er þetta sérstaklega vinsælt meðal Betty-bakaranna eða þeirra sem nota tilbúin köku-mix almennt. Þá er duftinu hreinlega blandað saman við kökuduftið og útkoman verður hreint út sagt stórkostlegt. Frægir matarbloggarar á borð við Berglindi Hreiðars (sem bakaði forsíðukökuna) á Gotteri.is nota þessa aðferð alltaf og fullyrða að kakan verði enn betri fyrir vikið. Ljóst er því að Royal klikkar aldrei!

Betty Crocker kaka með Royal búðingi.
Betty Crocker kaka með Royal búðingi. Þóra Sigurðardóttir
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert