Draumakakan er fundin: Kókosbolluostakaka

mbl.is/Hanna

Kókosbollur hafa löngum skipað sér sess sem séríslenskt sælgæti sem á engan sinn líka. Kókosbollur sjást víða í uppskriftum í ákaflega snjöllum búningi oft og tíðum en við erum ekki frá því að þessi útgáfa hér sé með þeim snjallari.

Hér hefur meistari Hanna sameinað kókosbolluna frægu við ostaköku og útkoman er algjör snilld. Matarbloggið hennar Hönnu er hægt að nálgast HÉR.

Kókosbolluostakaka  óbökuð og einföld

 Botn

  • 180 g Oreo-kex (eða 16 kökur)
  • 45 g smjör – brætt

Fylling

  • ¼ dl flórsykur
  • 400 g rjómaostur (nota Philadelphia-ost)
  • 4 kókosbollur
  • Börkur af ½ lífrænni sítrónu – rifinn fínt
  • 2 tsk. vanillu-extrakt
  • 2½ dl rjómi

 Hindberjasósa

  • 150 g hindber – frosin eða fersk (það er hagstæðara að nota frosin þar sem að fersku berin er mjög dýr)
  • ½ dl sykur
  • 1 msk. sítrónusafi
  • 2 tsk. maizena-mjöl

 Skraut

  • Krem innan úr 1 kókosbollu
  • Fersk hindber og mynta – ekki nauðsynleg

Verklýsing

 Botn
  1. Kexkökurnar muldar saman í matvinnsuvél – smjöri bætt við og maukað betur.
  2. Mulningurinn settur í 20 cm smelluform með bökunarpappír í botninum (ekki láta mulninginn koma upp á kantana) – ágætt að nota skeið til að dreifa úr honum og þjappa vel.
Fylling
  1. Rjómi þeyttur og lagður til hliðar.
  2. Flórsykur og rjómaostur hrærðir saman. Vanillu extrakt og sítrónuberki bætt við – hrært saman.
  3. Kókosbollum og rjóma blandað saman við blönduna með sleikju. Fyllingunni hellt ofan í smelluformið. Sett í kæli á meðan hindberjasósan er búin til.
Hindberjasósa 
  1. Hindber, vatn, sykur, sítrónusafi og maizena-mjöl sett í pott og suðan látin koma upp. Látið malla í 3 mínútur eða þar til berin eru orðin að mauki – hrært í á meðan.
  2. Vökvinn sigtaður frá og látinn kólna aðeins (sjá mynd). Mikilvægt að vökvinn sé orðinn kaldur (eða bara ylvolgur – ekki svo heitur að hann renni saman við ysta lagið á kökunni).
Samsetning og skraut
  1. Hindberjavökvanum hellt yfir fyllinguna. Látið jafna sig í kæli yfir nótt. Ágætt að setja lok yfir. Kakan tekin úr smelluforminu og sett á kökudisk
  2. Krem úr einni kókosbollu sett í tau- eða plastsprautu. Litlir toppar sprautaðir ofan á kökuna. Fallegt að skreyta með hindberjum og myntulaufum
mbl.is/Hanna
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert