Svínalund í sósubaði

Í þessum rétti eru það eplaskífur sem setja stemninguna.
Í þessum rétti eru það eplaskífur sem setja stemninguna. mbl.is/Maria P.

Þetta er kannski ekki klassíska uppskriftin að svínalund í rjómasósu því hér er eplum bætt út í og gefa alveg nýjan keim í réttinn sem þó inniheldur ennþá beikon og sveppi.

Svínalund í sósubaði með beikoni og eplum

  • 1 svínalund
  • 1 msk. smjör eða olía
  • 100 g beikon
  • 2 laukar
  • 250 g sveppir
  • 2 rauð epli
  • 2½ dl matvinnslurjómi
  • 2 stór hvítlauksrif
  • 1 búnt af steinselju

Annað:

  • ½ hvítkál
  • Hrísgrjón

Aðferð:

  1. Fjarlægið ef til vill sinar af lundinni og skerið hana í 2 cm þykkar skífur.
  2. Hitið smjör á pönnu og steikið kjötið við háan hita á báðum hliðum. Leggið kjötið til hliðar á disk.
  3. Skerið beikon, hakkið laukinn og steikið á pönnu. Skerið sveppina niður og setjið út á pönnuna.
  4. Skerið eplin í skífur og blandið þeim ásamt kjötinu saman við hráefnin á pönnunni. Bætið við rjómanum og pressuðum hvítlauk og leyfið aðeins að sjóða. Leyfið blöndunni að malla í 5 mínútur og smakkið til með salti og pipar. Blandið ef til vill vatni út í ef sósan er aðeins of þykk.
  5. Skerið kálið í strimla og setjið í pott með 1 dl vatni og smávegis af salti. Leyfið að gufusjóða í 5 mínútur þar til kálið er orðið mjúkt. Hellið þá vatninu af pottinum og setjið kálið í fat. Hellið réttinum yfir og dreifið saxaðri steinselju yfir. Berið fram með hrísgrjónum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert