Taco sem tryllir bragðlaukana

mbl.is/Rut Sigurðardóttir

Þessi mexíkóska dásemd er fyrir löngu búin að smeygja sér inn í íslenska matarmenningu og er reglulegur gestur á borðum landsmanna. Ég hef enn ekki hitt manneskju sem ekki kann að meta taco enda er endalaust hægt að leika sér með samsetningar og sósur. Taco (og burrito) hentar afburðavel í grænmetiseldamennsku enda byggjast uppskriftir mikið á guacamole, baunum og salsa.

Mjúkar taco-skeljar:
  • ½ dl ólífuolía
  • 1 tsk. sjávarsalt
  • 1 tsk. vínsteinslyftiduft
  • 3½ dl hveiti
  • 2 dl volgt vatn

Aðferð:

Blandið saman á litlum hraða í hrærivél. Fletjið út með kökukefli í litlar kökur. Kælið í um 10 mínútur. Hitið á meðan olíu á pönnu. Takið kökurnar úr kæli og steikið þar til þær taka á sig gullinbrúnan lit, í um það bil 5-7 mínútur á hvorri hlið.

Portobello- og sætkartöflutaco
1 portobellosveppur

Kryddlögur:

  • 1 dl ólífuolía
  • 2 msk. tamari- eða sojasósa
  • 1 hvítlauksgeiri
  • 1 msk. balsamikgljái/síróp
  • 1 msk. vegan-worcestershiresósa

Sætkartöflur:

  • 1 sæt kartafla
  • 1 msk. ólífuolía
  • paprikukrydd
  • salt
  • pipar
  • kanill á hnífsoddi

Meðlæti:

  • kóríander, ferskt
  • guacamole (hægt að kaupa tilbúið eða blanda saman stöppuðu avókadói, rauðu chili, söxuðum lauk og kóríander, sítrónu, salti og pipar)
  • salsasósa

Aðferð:

  1. Blandið kryddlöginn í skál. Skerið portobellosveppinn í sneiðar og veltið vandlega upp úr blöndunni. Látið marinerast í hálftíma.
  2. Hitið ofninn í 200°C. Skerið sætu kartöfluna í teninga og veltið bitunum upp úr blöndu af ólífuolíu, paprikukryddi, kanil, salti og pipar. Setjið í ofnskúffu og bakið í 14-16 mínútur.
  3. Veiðið sveppi upp úr marineringu og steikið á pönnu við miðlungshita. Bætið örlitlu af marineringunni við og steikið í 8-10 mínútur þar til sveppirnir eru mjúkir. Takið af pönnu og sigtið vökva frá.
  4. Deilið sætkartöfluteningum og sveppum í taco og bætið guacamole, salsasósu og ferskum kóríander við.
Bók Guðrúnar Sóleyjar þykir afbragðs veganesti út í vegan-lífið. Svo …
Bók Guðrúnar Sóleyjar þykir afbragðs veganesti út í vegan-lífið. Svo þarf maður ekkert endilega að vera vegan til að geta eldað upp úr bókinni - það er ekki eins og kjötætur þurfi að borða kjöt í hvert mál! mbl.is/Salka
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert