Forsetafrúin mun fylgja landsliðinu

Hluti kokkalandsliðsins ásamt forsetafrúnni, Georg Arnar Halldórsson, Snædís Xyza Jónsdóttir …
Hluti kokkalandsliðsins ásamt forsetafrúnni, Georg Arnar Halldórsson, Snædís Xyza Jónsdóttir Ocampo, frú Eliza Reid, Kara Guðmundsdóttir og Hafliði Halldórsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Íslenska kokkalandsliðið keppir á heimsmeistaramótinu í Lúxemborg um helgina. Forsetafrúin Eliza Reid er verndari landsliðsins og fylgir liðinu sem er staðráðið í að bæta frábæran árangur sinn frá því fyrir fjórum árum.

Heimsmeistaramót í matreiðslu er haldið á fjögurra ára fresti og fer nú fram um helgina í Lúxemborg. Íslenska kokkalandsliðið fylgir eftir framúrskarandi árangri liðsins frá síðasta móti sem skilaði liðinu í 5. sæti. Kokkalandsliðið vinnur með alíslenskar áherslur og kappkostar að nota sérvalið, sígilt, íslenskt hráefni. Þetta hráefni er notað til að útbúa þriggja rétta heita máltíð þar sem íslenskur þorskur, íslenskt lamb og Ísey skyr verða í aðalhlutverkum.

Stuðningur þjóðarinnar er kokkalandsliðinu afar mikilvægur og er ánægjulegt að tilkynna að frú Eliza Reid forsetafrú hefur gerst verndari þess. Kokkalandsliðinu er það mikill heiður að frú Eliza veiti því með þeim hætti styrk í verkefnum þess. Kokkalandsliðið er skipað einstaklingum af báðum kynjum með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og færni sem virkjuð er til að þróa nútíma íslenskt eldhús og skapa jafnframt faginu fjölbreyttar fyrirmyndir.

„Kannski má segja að það að kynnast matarsmekk þjóðar sé um leið að fá innsýn í sálarlíf hennar. Á undanförnum árum hefur gróskan í íslenskri matargerðarlist aukist gríðarlega og þá kemur sér auðvitað vel að hafa aðgang að því fjölbreytta og holla hráefni sem hér er á boðstólum. Mér finnst afskaplega gaman að vera verndari kokkalandsliðsins sem ætlar að sýna heiminum þessa áhugaverðu hlið hinnar íslensku þjóðarsálar og ég hlakka til samstarfs við þetta öfluga lið,“ segir frú Eliza Reid um aðkomu sína að landsliðinu.

Kokkalandsliðið hefur verið að leggja lokahönd á matseðla og ferla fyrir keppnina og æfir nú vikulega undir keppnina. Í keppninni um heitu réttina er útbúinn þriggja rétta matseðill með forrétti, aðalrétti og eftirrétti sem eldaður er frá grunni á keppnisstað fyrir 110 gesti. Hluti gestanna eru dómarar, gestir keppninnar og svo er hluti sætanna seldur á opnum markaði. Skemmst er frá því að segja að af öllum þeim landsliðum sem eru að keppa á mótiunu þá seldist fyrst upp á Ísland, Noreg og Hong Kong en miðarnir fóru á tæpum 15 mínútum.

Forseti Klúbbs matreiðslumanna er Björn Bragi Bragason en klúbburinn á og rekur kokkalandsliðið: „Liðið keppir stolt fyrir hönd íslensku þjóðarinnar í alþjóðlegum stórkeppnum og þróar um leið íslenskt eldhús og matarhefðina. Við byggjum á gömlum merg hvað varðar hráefnin okkar en um leið fögnum við og tileinkum okkur þær aðferðir, stefnur og strauma sem berast utan úr heimi. Kokkalandsliðið er samsett af hópi kvenna og karla, nútíma Íslendingum sem eiga uppruna sinn víða í veröldinni."

Kokkalandsliðið vinnur með alíslenskar áherslur í gegnum keppnina og lögð er mikil áhersla á sérvalið sígilt íslenskt hráefni þar sem íslenskur þorskur, íslenskt lamb og Ísey skyr verða í aðalhlutverkum.

Hægt verður að fylgjast með liðinu um helgina á:

Kokkalandsliðið 2018 skipa:

Þjálfari, Ylfa Helgadóttir, Kopar

Aðstoðarþjálfari, Jóhannes S. Jóhannesson, Landsvirkjun

Forseti Klúbbs matreiðslumeistara, Björn Bragi Bragason, Síminn

Snædís Xyza Jónsdóttir Ocampo, Hótel Saga

Sigurjón Bragi Geirsson, Garri

Snorri Victor Gylfason, Vox Hilton hótel

Þorsteinn Geir Kristinsson, Fiskfélagið

Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, Skál

Kara Guðmundsdóttir, Fiskfélagið

Denis Grbic, Grillið

Ari Þór Gunnarsson,  Fiskfélagið

Hinrik Lárusson, Grillið

Forsetahjónin Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson voru í Team …
Forsetahjónin Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson voru í Team Iceland í sumar. Myndband með þeim í fótbolta vakti mikla athygli.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert