Jólajógúrtin komin í verslanir

mbl.is/Arna

Nú geta jólaaðdáendur og gourmet-gæðingar um land allt tekið gleði sína því jólajógúrtin frá Örnu er komin í verslanir. Um er að ræða gríska jógúrt með bökuðum eplum og kanil. Líkt og haustjógúrtin kemur hún í fallegri glerkrukku sem sultugerðarfólk um land allt safnar af miklum móð. 

Jólajógúrtin verður til í takmörkuðu upplagi og er komin í verslanir um land allt. 

mbl.is/Arna
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert