Við vitum að sumar græjur eru mikilvægari en aðrar og jafnframt að fólk er mis-græjusinnað. Einn almesti græjunaggur sem þetta land byggir er Tobba Marínós sem lætur einskis ófreistað til að eignast græjur sem hún færir afar afar sannfærandi rök fyrir að hún geti ekki lifað án.
Vitamix... hér þarf víst engin orð. Blandari sem býr til ís og súpu án þess að missa úr takt er vél sem allir þurfa að eiga.
mbl.is/
Öll vitum við að Le Creuset eru afar vandaðir og góðir pottar. Tobba hefur tekið ástríðuna á næsta stig og eldar helst ekki í neinu öðru - nema þegar uppskriftin kveður á um annað.
mbl.is/
Meira Le Creuset... við giskum á að hér sé verið að sjarmera fyrir litnum enda er þetta ekta Tobba.
mbl.is/
Tobba myndi aldrei bjóða upp á kaffi án þess að hafa flóaða mjólk með.
mbl.is/
Tobba myndi aldrei henda ruslinu sínu í venjulega ruslatunnu. Þessi elska er svo tæknileg að hún er hólfaskipt og opnar sig sjálf þegar hún finnur á sér að þú þarft að losa.
mbl.is/
Forláta kaffivél sem er stærri en meðalstór súrefnistankur um borð í geimflaug. En grætur snilldarkaffi!
mbl.is/
Bara Tobba þarf brýningargræju!
mbl.is/
Tobba og Magimixið... svona er þetta alltaf heima hjá henni.
mbl.is/
Kjöthitamælir. Sumir telja hann nauðsyn.
mbl.is/
Sjálfvirkur sápuskammtari frá Eirbergi. Hér er engu logið.
mbl.is