Bailey‘s-unnendur hérlendis eru ófáir enda er líkjörinn dísæti og dásamlegi vinsæll í eftirrétti sem og til drykkjar. Við á Matarvefnum höfum birt ófáar uppskriftir með líkjörnum ljúfa sem hafa fengið feikna mikinn lestur. Það er því ekki að undra að við höfum fengið hlýtt í hjartað við að rekast á Bailey‘s trufflur og súkkulaðistykki hérlendis en slíkt hefur alla tíð verið ófáanlegt hérlendis. Gúmmelaðið góða fæst nú tímabundið hérlendis hjá Heimkaup bæði með saltkaramellu og í truffluformi.
Kolbrún Skaftadóttir, innkaupastjóri hjá Heimkaup, segir súkkulaðið fljúga út og líklegt að það klárist fyrr enn seinna. „Vinsælli snapparar hafa verið að gera súkkulaðinu góð skil sem eykur enn á söluna,“ segir Kolbrún.
Fyrir ykkur hin sem náið ekki smakka súkkulaðið ljúfa birtum við hér nokkrar af okkar vinsælustu Bailey‘s-eftirréttauppskriftum.
hlekkur
hlekkur
hlekkur
hlekkur
hlekkur