<span>Á laugardaginn hlaut Omnom einn mesta heiður í súkkulaðigerð sem völ er á þegar súkkulaðið Milk of Nicaragua vann gulllverðlaun á heimsmeistaramótinu í súkkulaðigerð sem besta mjólkursúkkulaði í heimi. Omnom keppti við stærstu nöfnin í súkkulaðiheiminum sem sérhæfa sig úr baun-í-bita súkkulaði. </span>
<span>Þá hlaut Omnom fern önnur gullverðlaun, tvenn silfurverðlaun og þrenn bronsverðlaun í mismunandi flokkum.</span>
<span>„Það hefði aldrei hvarflað að okkur fyrir fimm árum þegar við stofnuðum Omnom að við værum að fara fá verðlaun fyrir besta mjólkursúkkulaðið. Það hefur alltaf verið í gæðastefnu okkar að nota bestu mögulegu hráefnin hverju sinni. Oft er það þannig að ef maður er með góð hráefni þá er eftirleikurinn auðveldur,” segir Kjartan Gíslason, súkkulaðigerðarmaður og annar stofnenda Omnom. „Náin samskipti við kakóbaunabændur gerir okkur kleift að stunda heiðarleg viðskipti og auka sjálfbærni kakóbaunabænda,” segir hann enn fremur.</span>
Aðalverðlaun
Hreint /Unnið úr upprunabaun með mjólk
Gull: Omnom Chocolate – Milk of Nicaragua
Míkrólögun - Hreint / Unnið úr upprunabaun
Silfur: Omnom Chocolate – Madagascar 66%
Mikrólögun – Hreint / Unnið úr upprunabaun / dökkt mjólkursúkkulaði (sem inniheldur 50% kakó eða meira)
Gull: Omnom Chocolate – Milk of Nicaragua
Brons: Omnom Chocolate – Dark Milk of Tanzania
Míkrólögun – Hreint / Unnið úr upprunabaun með mjólk
- Gull: Omnom Chocolate – Milk of Madagascar
Viðbætt mjólkursúkkulaði (t.d. hnetur, karamella)
- Silfur: Omnom Chocolate – Caramel + Milk
Hvítt súkkulaði
- Brons: Omnom Chocolate – Coffee + Milk
- Brons: Omnom Chocolate – Lakkrís + Sea Salt
Viðbætt hvítt súkkukaði (t.d. með hnetum, karamellu)
- Silfur: Omnom Chocolate – Black n’ Burnt Barley
Hreint / Unnið úr upprunabaun dökkt mjólkursúkkulaði (sem inniheldur 50% kakó eða meira)
- Gull – Omnom Chocolate – Milk of Nicaragua
- Gull – Keypt beint af bónda: Omnom Chocolate – Milk of Nicaragua
Kjartan Gíslason og Óskar Þórðarson í Nicaragua.
mbl.is/aðend mynd