Staðurinn sem flestir gleyma að þrífa

Tatomm

Ábyggilega eitt af því fáa sem dettur inn á þriflistann er að þrífa gluggafalsinn. Við tökum eftir því að falsinn á opnanlegum gluggum, svala- og útidyrahurðinni getur orðið skítugur, þá sérstaklega hjá þeim gluggum sem snúa út að umferðagötu og sótið smýgur inn.

Venjulegt sápuvatn dugar skammt en með góðan grunnhreinsi við höndina eru þér allir vegir færir og drullan lekur burt. Eins má blanda gólfsápu og „skúra“ falsinn með litlum svampi – hvort tveggja virkar vel.

mbl.is/definedcleaning.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert