Borðuðu þakkargjörðamáltíðina allsber

mbl.is/Instagram

Fólk fagnar þakkargjörðarhátíðinni á mismunandi hátt og hin nýgiftu Nico Tortorella og Bethany Meyers eru þar engin undantekning. Þau sátu nakin fyrir á mynd sem þau birtu á Instagram síðu Tortorella. Hjónaband þeirra er um margt óvenjulegt en þau eru fjölelskandi (e. polyamourus) og búa ekki saman. 

Tortorella er nokkuð þekktur leikari og fyrirsæta og er lífstíll þeirra hjóna afar óhefðbundinn. Þrátt fyrir að búa ekki saman hefur Tortorella ekki útilokað barneignir og ljóst er að þau hjónin hrista all verulega upp í norminu. 

Af hverju þau ákváðu að fagna þakkargjörðinni á evuklæðunum skal ósagt látið en það mætti vel búa til spennandi jólakort úr myndinni. 

View this post on Instagram

full course meal. tank full. my cup runneth over. @bethanycmeyers

A post shared by nicotortorella (@nicotortorella) on Nov 22, 2018 at 3:26pm PST



Brúðarmynd þeira hjóna. Nokkuð óhefðbundin en ótrúlega falleg.
Brúðarmynd þeira hjóna. Nokkuð óhefðbundin en ótrúlega falleg. mbl.is/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert