Búin að missa öll meðgöngukílóin

Cardi B átti dóttur sína í júlí síðastliðinn.
Cardi B átti dóttur sína í júlí síðastliðinn. AFP

Cardi B er búin að eiga svakalegt ár. Hún er orðin einn vinsælasti rappari heims, eignaðist dótturin Kulture og giftist sínum heittelskaða á laun. 

Cardi er í senn óskaplega skemmtieg og hreinskilin og skefur ekkert utan af hlutunum áður en hún birtir þá á samfélagsmiðlum. Hér má sjá myndband sem hún birti á Instagram þar sem hún þakkar tedrykkjunum frá Teami fyrir að hafa komið líkama sínum í sitt fyrra form en Cardi hefur áður hrósað fyrirtækinu á samfélgasmiðlum. 

Sagði Cardi jafnframt að eina vandamálið væri að hún væri eiginlega búin að grennast of mikið sem hún hefði lítinn áhuga á. Það ætti að æra áhorfendur hennar en um sex milljónir manna hafa horft á myndbandið.

Cardi er ekki eina stjarnan sem hefur fjallað um vörur fyrirtækisins en Kylie Jenner gerði það á dögunum þar sem hún sagðist finna mikin mun á sér eftir að hafa drukkið drykki frá fyrirtækinu í sjö daga. 

Hún merkti þó póstinn sem auglýsingu eins og gera skal þegar um greidda umfjöllun er að ræða en athygli vekur að Cardi B gerir það ekki. Hvorki hún né talsmenn Teami hafa viljað tjá sig um það hvort hún fái greitt fyrir auglýsinguna en búast má við að ansi margir eigi eftir að prófa drykkinn eftir þessa frábæru auglýsingu. 

Cardi B og Offset.
Cardi B og Offset. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert