Einfalda jólasmákökuuppskriftin

Það er tilvalið að skella í jólasmákökur og njóta þeirra …
Það er tilvalið að skella í jólasmákökur og njóta þeirra yfir aðventuna. mbl.is/TheFoodClub.dk

Við erum dottin inn í smákökutímann og það er ekkert aftur snúið. Leyfum okkur bara að njóta og prófa nýjar uppskriftir sem þessa – mun eflaust falla vel í kramið hjá öllum á heimilinu.

Einfalda jólasmákökuuppskriftin (ca. 120 stk.)

  • 250 g sykur
  • 250 g smjör
  • 1 egg
  • 400 g kókosmjöl
  • 250 g hveiti
  • 2 msk. kakó
  • 1 tsk. natron

Aðferð:

  1. Pískið sykur, mjúkt smjör og egg vel saman. Blandið því næst restinni af hráefnunum út í og hnoðið vel.
  2. Búið til litlar kúlur úr deiginu (sirka á stærð við eina valhnetu) og leggið á bökunarpappír á bökunarplötu.
  3. Bakið við 170° í sirka 15 mínútur. Leyfið smákökunum alveg að kólna áður en þær fara í kökubox eða annað ílát.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert